jæja, þá er enn ein helgin liðin, og leið hún of hratt, en var nú samt alveg rosalega fín
á föstudaginn skellti ég mér í heimsókn til Garðars og fór að spila með honum og Birtu dóttur hans, spiluðum Yatzy, og haldiði ekki að þau hafi rústað mér, of course, þar sem ég er ekki heppin í spilum þessa dagana
fór svo í afmæli til Villa hennar Helgu frænku, það var fínt en ég fór snemma heim, (semsagt fór ekki á bæjarrölt) svo á lördag fór ég í bío á Stardust, sem var rosa fín ævintýramynd, og um kvöldið fór ég í útskrift til Ástu frænku, gaman að sjá þær píur aftur
mikið að gera þessa helgi, það er alltaf gaman, en hlakka til næstu helgar... gjörsamlega ekkert planað og hugsa að ég ætli bara að hafa það rólegt og gott, það er svo notalegt
en jiii að hugsa til þess að það eru jól eftir 8 vikur, ég fæ alveg kitl, ég elska jólin, bara allt í kringum það, allir vinirnir koma heim frá útlöndum og stressið, undirbúningur, maturinn, fólkið, og of course pakkarnir heheh... þetta verður æðislegt
núna er semsagt að koma nóvember og þá þarf ég að fara að versla gjafir, hef engan tíma fyrir það í desember, úff það er svo erfitt að finna gjafir,´eeeen það reddast alltaf.
en núna kallar svefninn á mig